Sunnudagur, 15. nóvember 2009
Loftsteinn - samantekt
Í viðbót við loftsteinafærsluna í gær, þá ætla ég að bæta við smá samantekt um umfjöllun sem hefur farið fram um þetta, fréttir og blogg osfrv.
Fyrst kemur fréttin á mbl.is kl. 18:46:
Ljóskúla sprakk á austurhimni
Fólk sem statt var á Suðurlandsvegi við Landvegamót um klukkan 18 í kvöld sá stóra skæra ljóskúlu á austurhimninum með hala á eftir sér. Skömmu seinna sprakk hún í fjóra eða fimm hluta og eldglæringar fylgdu með. Sást þetta fyrirbæri einnig úr Reykjavík.
Oft hefur maður séð minniháttar svokölluð stjörnuhröp þegar loftsteinar brenna upp í gufuhvolfinu, en þetta slær öllu við sem maður hefur séð, segir Óli Már Aronsson, fréttaritari Morgunblaðsins á Hellu sem þarna var á ferð.
Gaman verður að sjá hvort fleiri hafa ekki séð þetta og þótt mikið um, bætir Óli Már við.
Maður sem var á keyrslu í vesturbæ Reykjavíkur sá ljósið einnig, skýrt og greinilega.
Samkvæmt Almanaki Háskóla Íslands erum við að fara í gegn um loftsteinabelti. Áhrif þess eiga að vera í hámarki á þriðjudag. Viðmælendur blaðsins telja það líklegustu skýringuna. Síðan er bent á að himinn sé heiður og þá sjáist fyrirbæri sem þessi betur.
Ofangreindri frétt tengjast 5 bloggfærslur, eða 4 fyrir utan mína:
- Ómar RagnarssonÍ annað sinn á stuttum tíma.
- Páll Rúnar PálssonÉg sá þetta líka
- Anna EinarsdóttirLjós í Kolbeinsstaðahreppi.
Svo bætast fleiri blogg eða athugasemdir við á þessum bloggsíðum og hér að neðan er blogg frá Stjörnufræðivefnum, þar sem má finna allskonar umfjöllun um svona fyrirbrigði:
- Stjörnufræðivefurinn (www.stjornuskodun.is)Loftsteinar splundrast gjarnan
Þessi frétt birtist á visir.is kl. 19:05:
Dularfullt ljós á himnum - sennilega stjörnuhrap
Stjörnuhrap fyrir nokkrum vikum.
Allnokkrir hafa hringt inn á fréttastofu og segjast hafa séð skært ljós á himnum sem hrapaði til jarðar. Einn sjónarvotturinn taldi að þarna hafi verið óvanalega bjart stjörnuhrap. Svo virðist sem það hafi verið á suðurlandi en annar sjónarvotturinn sem var gestur í Bláa lóninu sagði fyrirbærið hafa verið svo skært og mikið að það virtist mjög nálægt. Fyrirbærið sást um klukkan hálf sex í kvöld.
Við héldum fyrst að þarna hefði flugvél hrapað," segir sjónarvotturinn sem var með konunni sinni í Bláa Lóninu þegar hann sá bjarmann og gat ekki lýst honum öðruvísi en að þarna virtist hreinlega logandi flugvél vera að hrapa til jarðar.
Hann segir fyrirbærið hafa verið á himnum í allnokkrar sekúndur. Sjálfur giskaði hann á að það hafi sést vel í um fimm sekúndur.
Konan mín fékk gæsahúð. Sjálfum líður mér eins og ég hafi séð eitthvað meiriháttar," sagði sjónarvotturinn í viðtali við Vísi.
Þegar haft var samband við Veðurstofu fengust engar upplýsingar um fyrirbærið sem er sennilega stjörnuhrap.
Og þessi frétt á visir,is kl, 19:38:
Ljósið var lofsteinn sem splundraðist með tilþrifum
Þetta var örugglega lofsteinn sem splundraðist með tilþrifum," segir Sævar Helgi Bragason formaður Stjörnuskoðunarfélags Seltjarnarness og einn af stjórnendum vefjarins Stjörnuskoðun.is. Þegar framburður sjónarvottanna sem sáu mikla ljósrák á austurhimni síðdegis er borinn undir Sævar segir hann lýsingarnar ríma nokkurn veginn við það að lofsteinn hafi splundrast þegar hann kom inn í gufuhvolfið.
Spurður út í framburð eins sjónarvottsins sem var í Bláa Lóninu þegar hann sá lofsteininn, en hann lýsti hrapinu eins og það væri mjög nálægt honum, segir Sævar Helgi: Það er mjög algengt að manni finnist þeir vera mjög nálægt en lofsteinninn er sennilega í tug kílómetra hæð."
Sævar segist frekar búast við því að ef steininn hafi náð til jarðar þá hafi hann endað í hafinu. Hann áréttar þó að hann viti ekki nóg um hrapið til þess að fullyrða neitt um það.
Þetta er miklu algengara en maður heldur," segir Sævar Helgi en það er ekki nema nokkrar vikur síðan annað eins hrap náðist á myndavél lögreglunnar sem var á leiðinni austur til Selfoss. Sævar segir þetta hrap sennilega hafa verið svipað nema svo virðist sem að um tilkomumeira hrap hafi átt sér stað nú.
Spurður hvort slík hröp séu að verða tíðari hér á himnum segir Sævar að svo sé alls ekki, veðrið hafi einfaldlega verið hagstæðara og á þá við að það sé búið að vera léttskýjað undanfarið.
Svo er bara að horfa sem oftast upp," segir Sævar Helgi um stjörnuhröpin en eitt slíkt á sér stað hér á landi mánaðarlega. Hægt er að fræðast um stjörnuhröp og lofsteina á vefsíðunni Stjörnuskoðun.is en þar má lesa allan mögulegan fróðleik um allt sem er tengt stjörnum og himingeimnum.
Gott í bili
Myndaalbúm
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (21.11.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku:
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku:
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.